Frestað hjá Val og ÍBV

Valsmenn og Eyjamenn leika annað kvöld - ekki í kvöld.
Valsmenn og Eyjamenn leika annað kvöld - ekki í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Leik Valsmanna og ÍBV í Olís-deild karla í handknattleik sem fram átti að fara í Vodafonehöllinni á Hlíðarenda í kvöld hefur verið frestað þar sem Eyjamenn komast ekki í land vegna ófærðar.

Leikurinn hefur verið settur á að nýju annað kvöld, föstudagskvöld, klukkan 19.30.

Þar með verða leikirnir í deildinni tveir í kvöld en ÍR mætir HK og FH mætir Haukum og báðar viðureignirnar hefjast klukkan 19.30.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert