„Þurfum að bæta okkur á milli leikja“

Gunnar Magnússon, þjálfari Íslands- og bikarmeistara ÍBV, var nokkuð ánægður með leik sinna manna í 50 mínútur þó liðið hafði tapað 25:18 fyrir Val á Hlíðarenda í Olís-deild karla í handbolta.

„Mér fannst við spila vel í 50 mínútur í dag,“ sagði Gunnar Magnússon í samtali við mbl.is í kvöld en bætti við að liðið hefði þurft að fá fleiri auðveld mörk til að leggja Valsliðið að velli.

„Okkur vantaði hraðaupphlaup til að refsa og fá nokkur létt mörk, “ sagði Gunnar meðal annars en viðtalið við hann í heild sinni má sjá á meðfylgjandi myndskeiði. 

Andri Hemir Friðriksson sækir að marki Vals í kvöld.
Andri Hemir Friðriksson sækir að marki Vals í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert