Alexander og Stefán úr leik - Róbert áfram

Róbert Gunnarsson og félagar eru komnir í átta liða úrslit.
Róbert Gunnarsson og félagar eru komnir í átta liða úrslit. AFP

Þýska liðið Rhein-Neckar Löwen er úr leik í Meistaradeild Evrópu í handknattleik eftir tap á útivelli fyrir Pick Szeged frá Ungverjalandi, 31:29, í síðari leik liðanna í sextán liða úrslitum keppninnar.

Löwen tapaði fyrri leiknum á heimavelli, 34:30, og því var róðurinn þungur fyrir seinni leikinn. Ungverska liðið hafði þriggja marka forystu í hálfleik, 16:13, og sigurinn í sjálfu sér aldrei í hættu. Alexander Petersson skoraði eitt mark fyrir Löwen en Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað.

Róbert Gunnarsson og félagar í PSG eru hins vegar komnir áfram eftir sigur á Dunkerque, 23:22, í sextán liða úrslitunum. Róbert og félagar unnu fyrri leikinn með tveimur mörkum, 23:21, og komust því samtals áfram með þremur mörkum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert