Aron og Ólafur úr leik þrátt fyrir sigur

Aron Kristjánsson og lærisveinar eru úr leik.
Aron Kristjánsson og lærisveinar eru úr leik. mbl.is/Golli

Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í liði KIF Kolding eru úr leik í Meistaradeild Evrópu í handknattleik þrátt fyrir sigur á Zagreb, 23:21 í síðari leik liðanna í sextán liða úrslitum keppninnar í dag.

Kolding tapaði fyrri leiknum á útivelli 22:17 og þurfti því stærri sigur til að komast áfram í næstu umferð. Leikurinn var jafn og spennandi lengst af, Kolding var yfir 11:9 í hálfleik en í lokin voru það Króatarnir sem fögnuðu þrátt fyrir sigur Kolding, 23:21.

Ólafur Stefánsson, sem Aron fékk til liðs við sig fyrir leikina tvo, byrjaði á bekknum en kom við sögu þegar leið á.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert