Guðjón Valur markahæstur og auðveldlega áfram

Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur hjá Barcelona í kvöld.
Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur hjá Barcelona í kvöld. AFP

Guðjón Valur Sigurðsson og félagar hans í Barcelona eru komnir örugglega áfram í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í handknattleik eftir sigur á liði Álaborgar, 29:22, í síðari leik liðanna á Spáni í dag.

Börsungar unnu fyrri leikinn með lygilegum tölum, 31:11, og ljóst að einvígið var svo gott sem búið. Börsungar fara því áfram, samanlagt með 27 marka mun en liðið hafði fimm marka forystu í hálfleik, 14:9.

Guðjón Valur var markahæstur í liði Barcelona í kvöld, en hann skoraði sex mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert