Fullkomin frammistaða Guðjóns Vals

Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. mbl.is/Golli

Guðjón Valur Sigurðsson var langmarkahæsti leikmaður Barcelona í kvöld þegar liðið vann risasigur á Huesca á útivelli, 43:22, í spænsku 1. deildinni í handbolta.

Guðjón Valur skoraði 10 mörk í leiknum og þurfti aðeins 10 skottilraunir til þess. Hann nýtti meðal annars bæði vítaköst sín og skoraði fimm mörk úr hraðaupphlaupum.

Barcelona hefur unnið alla 22 leiki sína í deildinni og er með átta stiga forskot á toppnum þegar átta umferðum er ólokið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert