Guðjón og félagar til Zagreb

Guðjón Valur Sigurðsson í leik með Barcelona.
Guðjón Valur Sigurðsson í leik með Barcelona. AFP

Guðjón Valur Sigurðsson og samherjar í spænska meistaraliðinu Barcelona mæta HC Zagreb í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik og fer fyrri leikurinn fram í Zagreb. Þýska meistarliðið Kiel dróst gegn Pick Szeged sem sló Rhein-Neckar Löwen út í 16-liða úrslitum keppninnar. Síðari viðureignin verður í Kiel. 

Róbert Gunnarsson og félagar í PSG leika við ungverska meistaraliðið Veszprém og fer fyrri leikurinn fram í París. 

Fjórði leikur 8-liða úrslitanna verður á milli Vardar Skopje og pólsku meistaranna, Vive Kielce. 

Fyrri leikir 8-liða úrslitanna fara fram 8-. 12. apríl og seinni leikirnir 15. - 19. apríl.

Undanúrslitaleikirnir verða háðir í Köln laugardaginn 30. maí og úrslitaleikurinn daginn eftir á sama stað.  Það er enn möguleiki að þrjú Íslendingalið verði í undanúrslitum keppninnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert