Alexander markahæstur

Alexander Petersson var markahæstur í kvöld.
Alexander Petersson var markahæstur í kvöld. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Rhein-Neckar Löwen komst í kvöld upp að hlið Kiel í toppsæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik eftir auðveldan sigur á Lemgo, 39:28, á útivelli.

Alexander Petersson var markahæstur í liði Löwen með sjö mörk og Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði eitt, en Löwen var 22:13 yfir í hálfleik. Kiel og Rhein-Neckar Löwen eru efst og jöfn í deildinni með 48 stig en Flensburg kemur þar á eftir með 41,

Þá töpuðu lærisveinar Dags Sigurðssonar hjá Füsche Berlin illa, 31:24, en liðin eru að berjast í efri hluta deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert