Átta marka sigur Aftureldingar í Eyjum

Hart barist í leik ÍBV og Aftureldingar.
Hart barist í leik ÍBV og Aftureldingar. mbl.is/Styrmir Kári

Afturelding gerði góða ferð til Eyja í kvöld en liðið vann átta marka sigur á Íslandsmeisturum ÍBV, 31:23, þegar liðin áttust við í Olís-deild karla í handknattleik.

Það sást strax í upphafi leiks að Afturelding ætlaði sér sigur og voru þeir sterkari á öllum vígstöðum og staðan var, 17:11 í hálfleik. Afturelding sigldi svo öruggum sigri í höfn með góðri vörn og vann öruggan sigur, 31:23.

Markahæstur í liði ÍBV var Andri Heimir Friðriksson með 8 mörk. Hjá Aftureldingu var það Pétur Júníusson sem var markahæstur en hann skoraði einnig 8 mörk.

ÍBV 23:31 Afturelding opna loka
60. mín. Leik lokið Sanngjarn sigur hjá Aftureldingu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert