Hilmar hættir hjá HK

Hilmar Guðlaugsson.
Hilmar Guðlaugsson. mbl.is/Árni Sæberg

Hilmar Guðlaugsson, sem þjálfað hefur meistaraflokk kvenna í handknattleik hjá HK frá árinu 2010, mun láta af störfum í vor eftir að samningur hans rennur út.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stjórn handknattleiksdeildar HK þar sem Hilmari eru þökkuð vel unnin störf en hann hefur þjálfað yngri flokka félagsins frá árinu 2004 með góðum árangri og gegnt stöðu yfirþjálfara HK undanfarin ár.

HK er í 9. sæti, einu sæti frá úrslitakeppninni, þegar liðið á eftir heimaleik við Fylki á laugardag og útileik við Stjörnuna næsta þriðjudag. Liðið er einu stigi á eftir Selfossi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert