Afturelding gerði góða ferð til Eyja í kvöld en liðið vann átta marka sigur á Íslandsmeisturum ÍBV, 31:23, þegar liðin áttust við í Olís-deild karla í handknattleik.
Það sást strax í upphafi leiks að Afturelding ætlaði sér sigur og voru þeir sterkari á öllum vígstöðum og staðan var, 17:11 í hálfleik. Afturelding sigldi svo öruggum sigri í höfn með góðri vörn og vann öruggan sigur, 31:23.
Markahæstur í liði ÍBV var Andri Heimir Friðriksson með 8 mörk. Hjá Aftureldingu var það Pétur Júníusson sem var markahæstur en hann skoraði einnig 8 mörk.
ÍBV | 23:31 | Afturelding | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Leik lokið Sanngjarn sigur hjá Aftureldingu. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |