Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður í handknattleik átti stórleik í frábærum sigri Bergischer á Evrópumeisturum Flensborgar á dögunum í efstu deild þýska handboltans. Björgvin Páll varði hvert skotið á fætur öðru eins og sjá má í meðfylgjandi myndkeiði við mikinn fögnuð áhorfenda.
Að leik loknum var Björgvin ásamt dóttur sinni tekinn í viðtal þar sem hann svaraði spurningum á reiprennandi þýsku þar sem augljóst var að hann sagði réttu orðin.
Nochmal vielen dank an alle BHC-Fans für eure Unterstützung am Samstag und auch für den Applaus nach dem Spiel! Gänsehaut...
Posted by Björgvin Páll Gústavsson on Monday, 30 March 2015