Ekki endalok handboltans hjá Stjörnunni

„Það er sárt að falla enda er þetta í fyrsta sinn sem ég geri það,“ sagði Skúli Gunnsteinsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir að liðið tapaði gegn Val í kvöld og féll þar með úr efstu deild.

Fjölmargir leikir Stjörnnar hafa endað með eins marks tapi líkt og í kvöld. „Það er dálítið saga okkar í deildinni í vetur, fjögmargir leikir, eins og þessi, sem hefði getað dottið vorum megin sem var en dutta ekki með okkur,“ sagði Skúli

Hann sagðist ekki vita hvort leikmenn yrðu áfram hjá félaginu eða hvað hann myndi gera. „Við höfum einbeitt okkur að þessari lokabaráttu og ekki hugsað um neitt annað þannig að það á allt eftir að koma í ljós. Við erum með fðina yngri flokka þannig að þetta eru ekki endalok handboltans hjá Stjörnunni,“ sagði Skúli

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert