Aftur í liði vikunnar

Björgvin Páll Gústavsson.
Björgvin Páll Gústavsson. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, er í liði 28. umferðar þýsku 1. deildarinnar í handknattleik hjá vikuritinu handballwoche sem kom út í dag. Þetta er í annað sinn á leiktíðinni sem Björgvin Páll er í liði umferðarinnar hjá blaðinu.

Björgvin Páll átti framúrskarandi leik í marki Bergischer HC þegar liðið lagði Evrópumeistara Flensburg, 36:31, á heimavelli á laugardagskvöldið eins sagt var frá á mbl.is í gær.  Eftir leikinn á laugardaginn tilkynnti Björgvin Páll að hann hafi skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert