Fimmtán marka sigur hjá Kiel

Aron Pálmarsson lét nægja að skora einu sinni hjá Björgvini …
Aron Pálmarsson lét nægja að skora einu sinni hjá Björgvini Páli Gústavssyni í kvöld. AFP

Kiel endurheimti efsta sæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í kvöld með stórum sigri, 32:17, á Bergsicher sem þeir Björgvin Páll Gústavsson og Arnór Þór Gunnarsson leika með. Leikið var á heimavelli Kiel sem hafði tveggja marka forskot í hálfleik, 11:9.

Leiðir skildu hinsvegar snemma í síðari hálfleik. 

Arnór Þór Gunnarsson skoraði eitt mark af mörkum Bergischer úr vítakasti. Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Kiel sem hefur 52 stig eftir 29 leiki í efsta sæti. Patrick Wiencek var markahæstur hjá Kiel með níu mörk og Marko Vujin var með sex mörk.  Bergsicher er í 12. sæti. 

Lærisveinar Dags Sigurðarssonar í Füchse Berlin unnu í kvöld Hamburg, 28:25, á heimavelli.  Füchse Berlín situr í sjöunda sæti deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert