Grótta gaf ekkert eftir

Viggó Kristjánsson og félagar í Gróttu unnu Víkinga í lokaleik …
Viggó Kristjánsson og félagar í Gróttu unnu Víkinga í lokaleik sínum í 1. deild á þessari leiktíð. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Grótta lauk keppni í 1. deild karla í handknattleik í kvöld á sigri á næsta efsta liðinu, Víkingi, 27:24, á heimavelli og þar með var fangað annað kvöldið í röð í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi en í gær fékk kvennalið Gróttu afhentan deildarmeistarabikarinn í Olís-deild kvenna.

Grótta verður meðal þátttökuliða í Olís-deild karla á næsta keppnistímabili. Liðið vann 1. deildina með glæsibrag, hlaut 47 stig af 48 mögulegum. 

Víkingur varð í öðru sæti og mætir Hömrunum frá Akureyri í undanúrslitum umspils um sæti í Olís-deild á næstu leiktíð. Fjölnir hafnaði í þriðja sæti og hefur aldrei náð betri árangri í deildinni. Fjölnir vann í kvöld KR, 38:22, í Dalhúsum. Fjölnir leikur við Selfoss í undanúrslitum umspilsins um laust sæti í Olísdeildinni. Selfoss vann Þrótt í kvöld, 38:24.

Grótta - Víkingur 27:24 (14:11)

Mörk Gróttu: Viggó Kristjánsson 5, Þórir Jökull Finnbogason 4, Júlíus Þórir Stefánsson 3, Þorgeir Bjarki Davíðsson 3, Aron Dagur Pálsson 3, Aron Heiðar Guðmundsson 2, Aron Valur Jóhannsson 2, Styrmir Sigurðsson 2, Hjalti Hjaltason 2, Kristján Þór Karlsson 1.
Mörk Víkings: Jóhann Reynir Gunnlaugsson 12, Hlynur Óttarsson 4, Egill Björgvinsson 3, Arnar Freyr Theodórsson 2, Jónas Bragi Hafsteinsson 2, Hjálmar Þór Arnarsson 1.

Fjölnir - KR 38:22 (16:11)

Mörk Fjölnis: Breki Dagsson 7, Bjarki Lárusson 7, Arnar Ingi Guðmundsson 5, Brynjar Loftsson 5, Kristján Örn Kristjánsson 4, Bjarni Ólafsson 3, Sveinn Þorgeirsson 2, Sigurður Guðjónsson 2, Unnar Arnarsson 2, Björgvin Páll Rúnarsson 1.
Mörk KR: Hermann Ragnar Björnsson 9, Guðjón Finnur Drengsson 4, Finnur Jónsson 3, Arnar Jón Agnarsson 2, Pétur Gunnarsson 2, Eyþór Hilmarsson 1, Haraldur Þorvarðarson 1.

Selfoss - Þróttur R. 38:24 (18:10)
Mörk Selfoss: Sverrir Pálsson 8, Matthías Örn Halldórsson 5, Jóhann Erlingsson 4, Ómar Vignir Helgason 4, Hergeir Grímsson 3, Árni Guðmundsson 3, Egidijus Mikalonis 3, Guðjón Ágústsson 2, Alexander Egan 2, Árni Geir Hilmarsson 2, Jóhannes Snær Eiríksson 1, Gunnar Páll Júlíusson 1.
Mörk Þróttar: Viktor Jóhannesson 9, Birgir Már Birgisson 5, Ólafur Guðni Eiríksson 3, Hinrik Wöhler 2, Óli Björn Vilhjálmsson 2, Logi Ágústsson 2, Eyþór Snæland 1.

ÍH - Mílan 22:31

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert