Alexander markahæstur er Ljónin töpuðu

Alexander Pettersson.
Alexander Pettersson.

Rhein-Neckar Löwen náði ekki að jafna Kiel að stigum á toppi þýsku 1. deildarinnar í handknattleik, en liðið tapaði á útivelli fyrir Wetzlar í kvöld, 31:27.

Wetzlar var með undirtökin frá upphafi og var fimm stigum yfir í hálfleik, 15:10. Liðið náði mest sjö marka forystu í síðari hálfleik áður en Löwen minnkaði muninn niður í þrjú mörk. Liðið reyndi hvað það gat undir lokin en lokatölur 31:27 fyrir Wetzlar.

Alexander Petersson var markahæstur í liði Löwen með átta mörk, en Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað. Þessi úrslit þýða það að Kiel er áfram eitt á toppi deildarinnar með 55 stig en Löwen er tveimur stigum á eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert