Arnar Pétursson tekur við Eyjaliðinu

Arnar Pétursson.
Arnar Pétursson. mbl.is/Árni

Samkvæmt heimildum mbl.is. hefur Arnar Pétursson verið ráðinn sem þjálfari meistaraflokksliðs karla hjá ÍBV en hann tekur við starfinu af Gunnari Magnússyni sem sagði upp störfum eftir leiktíðina.

Uppfært kl. 15:28. ÍBV hefur staðfest fréttirnar.

Arnar var ásamt Gunnari, þjálfari liðsins í fyrra þegar ÍBV varð Íslandsmeistari en hann var auk þess þjálfari Eyjamanna þegar þeir fóru upp úr 1.deild fyrir tveimur árum.

Auk þess að hafa þjálfað liðið, lék Arnar með ÍBV lengi vel enda uppalinn í Eyjum en hann lék einnig meðal annars með Haukum og Stjörnunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert