Stjarnan jafnaði metin

Frá viðureign Fram og Stjörnunnar í fyrradag.
Frá viðureign Fram og Stjörnunnar í fyrradag. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Stjarnan og Fram áttust við öðru sinni í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handknattleik í Mýrinni í dag. Fylgst var með leiknum í beinni textalýsingu hér á mbl.is. Lokatölur í leiknum urðu 23:18 Stjörnunni í hag sem hefur þar með jafnað metin í einvígi liðanna.

Helena Rut Örvarsdóttir var atkvæðamest í liði Stjörnunnar með sex mörk og Florentina Stanciu varði 17 skot.

Steinunn Björnsdóttir, Guðrún Þóra Hálfdánardóttir og Elísabet Gunnarsdóttir voru markahæstar hjá Fram með þrjú mörk hver. 

Næsti leikur liðanna verður í Safamýrinni á mánuagskvöldið næstkomandi.  

Stjarnan 23:18 Fram opna loka
60. mín. Leik lokið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert