„Við erum gríðarlega ánægðir. Það hefur kostað okkur blóð, svita og næstum því tár að ná þessum áfanga sem hefur verið eitt markmiða okkar,“ sagði Anton Gylfi Pálsson, milliríkjadómari í handknattleik, en hann og Jónas Elíasson dæma úrslitaleik EHF-keppni karla í Berlín 17. maí.
Enn er ekki ljóst hvaða lið leika til úrslita en daginn fyrir úrslitaleikinn fara undanúrslitin fram og þar mætast Skjern og Hamborg annarsvegar og Füchse Berlín og Velenje hinsvegar.
„Við teljum okkur hafa unnið fyrir þessu með því að hafa staðið okkur vel í þeim verkefnum sem við höfum fengið, jafnt hér heima sem í útlöndum. Auk þess eru þetta gleðifréttir fyrir íslenskan handbolta að fyrir hendi séu dómarar sem treyst er fyrir svo stóru verkefni sem úrslitaleikur í Evrópukeppni er,“ segir Anton Gylfi sem hefur dæmt með Jónasi í tvö ár en dæmdi árum saman með Hlyni Leifssyni, m.a. í lokakeppni EM karla 2012.
Eftir því sem næst verður komist hafa íslenskir dómarar dæmt sjö úrslitaleiki í Evrópumótum félagsliða, karla og kvenna, fram til þessa. Stefán Arnaldsson tók þátt í þeim öllum. Hann dæmdi þrjá úrslitaleiki í Evrópukeppni bikarhafa og meistaraliða með Rögnvaldi Erlingssyni frá 1994-1997. Til viðbótar dæmdi hann fjóra úrslitaleiki í sömu mótum frá 2003-2006 með Gunnari Viðarssyni. Á árum Stefáns voru alltaf tveir úrslitaleikir á mótunum og dæmdi hann ásamt félögum sínum ýmist fyrri eða síðari úrslitaleikinn.