Henrik Toft Hansen til Flensburg

Henrik Toft Hansen
Henrik Toft Hansen Mynd/Michael Frey

Danski landsliðsmaðurinn og línumaðurinn Henrik Toft Hansen mun yfirgefa HSV Hamburg, félag sitt í efstu deild þýska handboltans að þessari leiktíð lokinni og flytja sig til yfir til keppinauta þeirra í Flensborg.

Hansen var boðinn nýr samningur frá HSV en hann ákvað að flytja sig um set, til þess að vera nær heimahögunum í Danmörku. Eldri bróðir Henriks, er René Toft Hansen varnartröll og línumaður hjá Alfreð Gíslasyni og lærisveina hans í Kiel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert