Brynjar Darri samdi við FH

Brynjar Darri Baldursson og Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar
Brynjar Darri Baldursson og Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar Ljósmynd/FH

Markvörðurinn Brynjar Darri Baldursson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við FH.

Brynjar Darri kom á láni frá Stjörnunni fyrir síðasta tímabil og varði mark FH ásamt Ágústi Elí Björgvinssyni. Brynjar Darri hefur nú ákveðið að halda kyrru fyrir í Kaplakrika og skrifað undir tveggja ára samning við Hafnarfjarðarliðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert