Hulda Bryndís til liðs við Fylki

Hulda Bryndís Tryggvadóttir.
Hulda Bryndís Tryggvadóttir. Ljósmynd/Fylkir

Hulda Bryndís Tryggvadóttir hefur samið við handknattleiksdeild Fylkis til tveggja ára. Hulda, sem er nítján ára, lék með HK á nýafstöðnu tímabili en hún er uppalinn Akureyringur.

Í fréttatilkynningu frá Fylki segir:

„Hún hefur leikið með öllum unglingalandsliðum Íslands og var lykilmaður í liðum 3. flokks og meistaraflokks HK en hún spilaði 22 leiki í Olísdeild kvenna og skoraði í þeim 52 mörk.

Hulda er efnilegur leikmaður sem getur spilað allar stöður fyrir utan. Það er mikið gleðiefni að Hulda Bryndís hafi ákveðið að spila í appelsínugulu treyjunni á næstu leiktíð en hún var eftirsótt af liðum í Olísdeild kvenna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert