Ásgeir Örn markahæstur í sigurleik

Ásgeir Örn Hallgrímsson.
Ásgeir Örn Hallgrímsson. mbl.is/Golli

Landsliðsmaðurinn Ásgeir Örn Hallgrímsson var markahæstur í liði Nimes þegar liðið sigraði Chamberý, 25:24, í frönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld.

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði eitt af mörkum Séletat í tapi liðsins gegn Istres, 33:27.

Nimes er í áttunda sæti deildarinnar með 21 stig en Sélestat er í næst neðsta sætinu með 10 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert