Sjö mörk Arnórs dugðu ekki

Arnór Þór Gunnarsson.
Arnór Þór Gunnarsson. mbl.is/Golli

Bergischer HC, sem landsliðsmennirnir Arnór Þór Gunnarsson og Björgvin Pál Gústavsson leika með, tapaði í kvöld með minnsta mun, 30:29, fyrir Friesenheim á útivelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Arnór Þór var markahæstur hjá Bergischer með sjö mörk, þar af fjögur úr vítaköstum.

Friesenheim var marki yfir í hálfleik, 15:14. Með sigrinum í kvöld lifir áfram von liðsins um að halda sæti sínu í deildinni en tvær umferðir eru eftir. Bergischer HC er hinsvegar öruggt um sæti í deild þeirra bestu áfram á næsta keppnistímbili. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert