Læriveinar Arons í dauðafæri að vinna titilinn

Aron Kristjánsson.
Aron Kristjánsson. mbl.is/Golli

Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í KIF Kolding eru komnir með aðra höndina á meistarabikarinn og rúmlega það.

KIF Kolding sótti Skjern heim í fyrri úrslitaleiknum um meistaratitilinn í kvöld og fagnaði KIF Kolding sex marka sigri, 30:24, eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 15:11.

Strákarnir hans Arons höfðu tögl og hagldir allan tímann og sigur þeirra var aldrei í hættu. Liðin eigast aftur við í Trefor Arena höllinni í Bröndby og með sigri í þeim leik tryggir KIF Kolding sér danska meistaratitilinn annað árið í röð undir stjórn Arons.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert