Oddur með sex í naumum útisigri

Oddur Gretarsson.
Oddur Gretarsson.

Þremur leikjum var að ljúka í þýsku 2. deildinni í handknattleik þar sem Íslendingalið voru í eldlínunni.

Fannar Friðgeirsson skoraði þrjú mörk fyrir Grosswallstadt þegar liðið vann nauman sigur á Bad Schwartau, 23:21. Grosswallstadt er í sjötta sætinu.

Oddur Gretarsson var markahæstur Íslendinganna hjá Emsdetten þegar liðið lagði Rimpar á útivelli, 29:28. Oddur skoraði sex mörk og var næstmarkahæstur í liði Emsdetten.

Anton Rúnarsson skoraði eitt mark fyrir liðið en Ernir Hrafn Arnarson komst ekki á blað, en Emsdetten siglir lygnan sjó um miðja deild.

Þá töpuðu lærisveinar Aðalsteins Eyjólfssonar hjá Hüttenberg dýrmætum stigum þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir Bittenfeld, 24:21. Liðið er í þriðja neðsta sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert