Brynhildur Sól Eddudóttir varð í gærkvöld portúgalskur meistari í handknattleik með liði sínu Alavarium Love Tiles þegar það vann Madeira SAD, 25:21, í oddaleik um meistaratitilinn.
Þetta var þriðji úrslitaleikur liðanna sem höfðu áður unnið sinn heimaleikinn hvort. Brynhildur, sem er 19 ára gömul, er fædd og uppalin í Noregi en fór til Portúgals síðasta haust og hefur jafnframt æft með íslenska unglingalandsliðinu í vetur.
Á myndunum má sjá Brynhildi og samherja hennar fagna meistaratitlinum.