Stefán Rafn markahæstur Ljónanna

Stefán Rafn var markahæstur í kvöld.
Stefán Rafn var markahæstur í kvöld. Ljósmynd/http://www.rhein-neckar-loewen.de

Stefán Rafn Sigurmannsson var markahæstur hjá Rhein-Neckar Löwen í kvöld þegar liðið burstaði Friesenheim, 37:21, á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik.

Stefán Rafn skoraði sex mörk en Alexander Petersson var ekki með, en Löwen gerir sér enn vonir um að hampa meistaratitlinum. Liðið er tveimur stigum á eftir Kiel, sem á leik síðar í kvöld. Kiel er með mun betri markatölu og vinni lærisveinar Alfreðs Gíslasonar báða sína leiki verða þeir meistarar.

Misstígi þeir sig hins vegar þurfa Ljónin að vinna sína leiki stórt til að saxa á markatölu Kiel. Það tókst ágætlega upp í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert