Jóhann Karl til liðs við Nordsjælland

Jóhann Karl Reynisson.
Jóhann Karl Reynisson. Mynd/nordsjaelland.

Línumaðurinn Jóhann Karl Reynisson hefur gengið til liðs við Nordsjælland Håndbold sem mun leika í efstu deild danska handboltans á næstu leiktíð.

Jóhann er 27 ára gamal og lék lengst af með Fram á Íslandi en hefur spilað síðustu tvö tímabil með B-deildarliðinu Ajax København.

„Ég er ótrúlega glaður að fá að spila fyrir Nordsjælland Håndbold. Þetta er mikil áskorun fyrir mig að fá að spila í efstu deild. Ennfremur hlakka ég til þess að fá að njóta þess góða æfingarumhverfis sem félagið er þekkt fyrir. Ég mun leggja mig 100% í verkefnið, sagði Jóhann í viðtali á heimasíðu félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert