Ólöf Kolbrún aftur til HK

Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir.
Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir. mbl.is/Golli

Handknattleiksmarkvörðurinn Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir er komin til liðs við HK á nýjan leik eftir eins árs hlé og skrifaði í dag undir samning við Kópavogsfélagið til tveggja ára. Þetta kemur fram á vef HK.

Ólöf Kolbrún er 27 ára gömul og á 15 A-landsleiki að baki. Hún lék með yngri flokkum og meistaraflokki HK til ársins 2014 þegar hún tók sér frí frá handboltanum. Þó ekki alveg því hún skipti yfir til ÍBV og lék þrjá leiki með liðinu í úrvalsdeildinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert