Árni Steinn til SönderjyskE

Árni Steinn Steinþórsson.
Árni Steinn Steinþórsson. mbl.is/Ómar

Haukar hafa samþykkt sölu á Árna Steini Steinþórssyni til danska handknattleiksfélagsins SönderjyskE Herrehåndbold A/S en samningurinn mun taka gildi 1. júlí. Árni staðfesti þetta við netmiðilinn Sport.is

Árni Steinn gekk til liðs við Hauka árið 2011 og hefur ávallt verið mikilvægur hlekkur í liðinu. Hann spilaði 77 leiki fyrir Hauka og skoraði í þeim 260 mörk.

Hann var lykilmaður í úrslitakeppninni á leiktíðinni sem var að ljúka en Haukar tryggðu sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil síðan árið 2010. Hann varð þrisvar sinnum deildarmeistari með Haukum, tvisvar bikarmeistari og einu sinni Íslandsmeistari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert