Magnús Óli til Ricoh

Magnús Óli Magnússon.
Magnús Óli Magnússon. mbl.is/Árni Sæberg
Handknattleiksmaðurinn Magnús Óli Magnússon hefur skrifað undir samning við sænska úrvalsdeildarliðið Ricoh og mun því leika með sænska liðinu næsta tímabil.

Magnús Óli er enn einn FH-ingurinn sem heldur á vit ævintýranna í atvinnumennsku en undanfarin ár hafa leikmenn FH verið mjög eftirsóttir af liðum erlendis.

Magnús hefur verið einn besti leikmaður FH-liðsins undanfarin ár en hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við Hafnarfjarðarliðið. Rioch hafnaði í 12. sæti af 14 liðum í sænsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og fór í umspil um að halda sætinu. Það tókst og liðið leikur áfram í deild þeirra bestu.

Fyrir hjá Rioch er Tandri Már Konráðsson sem kom til liðsins fyrir síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert