Ísland í úrslit á Evrópumeistaramótinu

Íslenska U19 ára landsliðið er að gera afar góða hluti.
Íslenska U19 ára landsliðið er að gera afar góða hluti.

U19 ára landslið karla í handknattleik leikur til úrslita á opna Evrópumeistaramótinu í Svíþjóð á morgun eftir stórsigur á Hollendingum, 45:23, í undanúrslitum í dag.

Íslenska liðið hefur átt frábært mót og fór í gegnum riðlakeppnina og milliriðilinn með fullu húsi stiga. Gestgjafarnir, landslið Svíþjóðar bíður íslenska liðinu í úrslitaleiknum sem fer fram annað kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert