Ísland vann opna Evrópumeistaramótið

Íslenska U19 ára landsliðið vann alla leiki sína á mótinu.
Íslenska U19 ára landsliðið vann alla leiki sína á mótinu.

U19 ára landslið karla í hand­knatt­leik vann í kvöld Svíþjóð í úrslitaleik opna Evrópumeistaramótsins sem haldið er í Svíþjóð. Lokatölur urðu 31:29 sem þýðir að Ísland vann alla leiki sína á mótinu.

Svíþjóð var yfir í hálfleik 13:16 og komst í 18:14 stöðu áður en Íslendingar tóku við sér. Lokamínuturnar voru æsispennandi þar sem íslensku strákarnir höfðu að lokum betur. Egill Magnússon var markahæstur í íslenska liðinu með 10 mörk.

Íslenska liðið átti frá­bært mót og fór í gegn­um riðlakeppn­ina og mill­iriðil­inn með fullt hús stiga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert