Daði Laxdal aftur í Gróttu

Daði er kominn aftur í Gróttutreyjuna.
Daði er kominn aftur í Gróttutreyjuna. Mynd/Grótta.

Handknattleiksmaðurinn Daði Laxdal Gautason hefur skrifað undir tveggja ára samning við Gróttu sem leikur í efstu deild í handknattleik á komandi tímabili.

Daði er 21 árs gamall og leikur sem skytta og er uppalinn Gróttumaður en hann lék með öllum yngri flokkum félagsins þar til hann skipti yfir í Val árið 2011 en Daði lék einnig með Gróttu vorið 2014 á láni.

Á síðustu leiktíð lék Daði með HK í efstu deild og skoraði 51 mark í 23 leikjum en HK féll í 1. deild síðasta vor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert