Jóhann samdi við Víking

Jóhann Reynir Gunnlaugsson.
Jóhann Reynir Gunnlaugsson. mbl.is/Golli

Handknattleiksmaðurinn Jóhann Reynir Gunnlaugsson hefur gert nýjan samning við Víking til tveggja ára og spilar því með nýliðunum í úrvalsdeildinni á komandi keppnistímabili.

Jóhann var lykilmaður í liði Víkings síðasta vetur þegar það vann sér sæti í efstu deild á ný eftir nokkurt hlé en í tilkynningu frá Víkingum segir að hann hafi ákveðið að vera áfram hjá félaginu og taka þátt í spennandi uppbyggingu þó hann hafi verið með tilboð frá norsku félagsliði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert