Hákon Daði semur við ÍBV á ný

Hákon Daði Styrmisson
Hákon Daði Styrmisson mbl.is/Kristinn

Handknattleiksmaðurinn Hákon Daði Styrmisson hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við ÍBV.  Hákon Daði sem er fæddur árið 1997 hefur staðið sig gríðarlega vel með ÍBV. Hann skoraði 46 mörk á síðasta tímabili fyrir liðið. Þetta kemur fram á vef Eyjafrétta.

<br/>

Hákon Daði fór varð nýlega Evrópumeistari með U19 ára landsliði Íslands á móti sem fór fram í Svíþjóð. Hákon Daði spilaði þar stórt hlutverk en hann var næstmarkahæsti leikmaður Íslands og var valinn í lið mótsins. Hákon Daði var í hóp ÍBV þegar liðið varð Íslandsmeistari árið 2014. Hann átti einnig stóran þátt í að ÍBV komst í úrslitaleikinn og varð bikarmeistari í ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert