Barcelona vill Jicha

Filip Jicha er lykilmaður í liði Kiel.
Filip Jicha er lykilmaður í liði Kiel. Ljósmynd/thw-provinzial.de

Þýska sjónvarpsstöðin NDR greindi frá því í gær að Spánar- og Evrópumeistarar Barcelona hafi gert stórskyttunni Filip Jicha fyrirliða Kiel tilboð um samning til fjögurra ára.

Börsungar vilja fá Tékkann til að fylla skarð Nikola Karabatic sem er genginn í raðir Paris SG. „Jicha er með samning sem gildir til ársins 2016 með möguleika á framlengingu um eitt ár,“ sagði talsmaður Kiel í gær. 

Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel en liðið missti í sumar Aron Pálmarsson sem genginn er í raðir Veszprém í Ungverjalandi. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert