Örn Ingi að ganga til liðs við Hammarby

Örn Ingi Bjarkason.
Örn Ingi Bjarkason. Mbl/Eva Björk

Handboltamaðurinn Örn Ingi Bjarkason mun að öllum líkindum ganga til liðs við sænska félagið Hammarby, samkvæmt vefsíðu félagsins. 

Örn Ingi skoraði 81 mark í 24 leikjum í Olís-deildinni fyrir Aftureldingu og 51 mark í úrslitakeppninni, meira en nokkur annar. Afturelding lék til úrslita Íslandsmótsins en beið lægri hlut fyrir Haukum.

Örn Ingi, sem er 25 ára gamall, er þegar búinn að gera samning við Hammarby og gangast undir læknisskoðun en hann á eftir að funda með forráðamönnum félagsins. Hammarby lenti í 7. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert