Leó Snær til Malmö

Leó Snær Pétursson, HK.
Leó Snær Pétursson, HK. Ómar Óskarsson

HK-ingurinn Leó Snær Pétursson gekk í gær til liðs við HK Malmö í Svíþjóð. Þetta var staðfest á heimasíðu félagsins í gær.

Leó hefur hefur spilað með liði HK frá 2011 og féll með liðinu síðasta vor en lék þrátt fyrir það vel í búningi Kópavogsliðsins.

„Það verður gaman að læra sænskuna og spila í sænsku úrvalsdeildinni, þetta er gott skref fyrir mig að fá tækifæri til að spila í svona sterkri deild og aðstæðan og umgjörðin í kringum klúbbinn er til fyrirmyndar,“ sagði Leó við Fimmeinn.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert