Handknattleikskonan Jóhanna Helga Jensdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við FH en Jóhanna hefur leikið með Haukum undanfarin ár.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá FH. Jóhanna er 19 ára gömul og er þriðji leikmaðurinn sem FH fær til sín í sumar. Áður höfðu þær Elín Anna Baldursdóttir og Hildur Andrésdóttir gengið í félagið.