Björgvin skrifaði undir hjá Al Wasl

Björgvin Hólmgeirsson fer til Dubai.
Björgvin Hólmgeirsson fer til Dubai. Eva Björk Ægisdóttir

Handknattleiksmaðurinn Björgvin Hólmgeirsson er á leið til Dúbaí þar sem hann mun spila með handboltaliðinu Al Wasl SC í efstu deild þar í landi.

Þetta staðfesti hann við mbl.is í dag en samningurinn sem Björgvin skrifar undir er til 10 mánaða -  eða út þetta keppnistímabil.

„Þetta er allt klappað og klárt." sagði Björgvin við mbl.is í dag.

Björgvin hefur leikið afar vel með ÍR síðustu ár og verið einn albesti leikmaður deildarinnar undanfarin ár en hann var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins á lokahófi deildarinnar í vor.

Hann freistar þess nú að fara í annað skipti á ferlinum í atvinnumennsku en hann spilaði í Þýskalandi frá 2011 til 2012.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert