Íslenska U19 karlalandsliðið í handknattleik sigraði Suður-Kóreu 34:28 í 16-liða úrslitum á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Rússlandi.
Strákarnir höfðu undirtökin nánast allan leikinn en staðan í hálfleik var 17:14 fyrir Ísland. Suður-Kórea kom ákveðin til leiks í síðari hálfleik og komumst þeir yfir í fyrsta skipti í leiknum í stöðunni 20:19. Þá sögðu strákarnir okkar hingað og ekki lengra og sigruðu að lokum örugglega.
Ómar Magnússon var markahæstur í íslenska liðinu með 10 mörk, Óðinn Ríkharðsson skoraði 8 og Egill Magnússon 6.
Ísland mætir Brasilíu eða Rússlandi í 8-liða úrslitum á morgun klukkan 13.00 að íslenskum tíma en væntanlegir mótherjar strákanna mætast síðar í dag í 16-liða úrslitunum.
Mörk Íslands skoruðu:
Ómar Magnússon - 10
Óðinn Ríkharðsson - 8
Egill Magnússon - 6
Hákon Styrmisson - 4
Sigtryggur Rúnarsson - 3
Arnar Arnarsson - 2
Elvar Jónsson - 1
Markvarsla:
Grétar Guðjónsson - 13/40