Alfreð hefur leiktíðina með sigri

Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, fagnaði sigri gegn Gummersbach í fyrstu …
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, fagnaði sigri gegn Gummersbach í fyrstu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í dag. Ljósmynd/Guðmundur Svansson

Þýska 1. deildin í handbolta karla hófst í dag og hófu Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel keppnistímabilið með sigri á Gunnari Steini Jónssyni og félögum hans í Gummersbach. Lokatölur í leiknum urðu 30:26 fyrir Kiel.  

Gunnar Steinn skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach í leiknum. 

Þýsku meistararnir byrja því tímabilið í ár með góðum sigri, en Domagoj Duvnjak og Rune Dahmke voru markahæstir í liði Kiel með sex mörk hvor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert