Ásgeir Örn Hallgrímsson og Snorri Steinn Guðjónsson máttu sætta sig eins marks tap, 34:33, á heimavelli með liðinu sínu, Nimes, gegn Toulouse í franska deildabikarnum í handknattleik í kvöld. Nimes var marki yfir í hálfleik, 18:17, og náði um tíma fjögurra marka forskoti snemma í síðari hálfleik.
Ásgeir og Snorri voru í stórum hlutverkum hjá Nimes. Ásgeir skoraði átta mörk úr 12 skotum og Snorri Steinn fjögur mörk úr níu skotum, þar af brást honum bogalistinn í eina vítakastinu sem hann tók í leiknum.