Oddur Gretarsson skoraði 10 mörk í kvöld þegar lið hans Emsdetten vann Rimpar, 33:28, á útivelli í þýsku 2. deildinni í handknattleik. Þetta er annar leikurinn í röð þar sem Oddur skorar 10 mörk. Fjögur marka sinn í kvöld skoraði Oddur úr vítaköstum.
Ernir Hrafn Arnarson, fyrirliði Emsdetten, skoraði fimm mörk og Anton Rúnarsson fjögur.
Emsdetten, sem var með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda, hefur unnið sér inn fjögur stig í þremur fyrstu leikjum leiktíðarinnar.