Slæm tíðindi fyrir Alfreð

Alfreð Gíslason þjálfari Kiel.
Alfreð Gíslason þjálfari Kiel. AFP

Patrick Wiencek, línumaðurinn sterki í þýska meistaraliðinu Kiel og þýska landsliðinu, verður frá keppni næstu sex mánuðina í það minnsta.

Wiencek varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné í sigri Kiel á móti Flensburg í Meistaradeildinni á laugardaginn. Hann missir því af nær öllu tímabilinu með Kiel sem er mikil blóðtaka fyrir lærisveina Alfreðs Gíslasonar og þá verður fjarri góðu gamni með Þjóðverjum á Evrópumótinu í Póllandi í janúar.

Patrick Wiencek.
Patrick Wiencek. EPA
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert