Gunnar ánægður með drengina

Gunnar Magnússon, þjálfari Íslandsmeistara Hauka, var hæstánægður með sína menn í kvöld eins og gefur að skilja en Haukar völtuðu yfir ÍR 38:23 í Olís-deildinni. 

„Ég er hrikalega ánægður með strákana. Frábær leikur og þeir komu virkilega grimmir
í þennan leik,“ sagði Gunnar meðal annars við mbl.is en nánar er rætt við Gunnar í meðfylgjandi myndskeiði og þar reifar hann aðeins hvað hrjáir Jón Þorbjörn og Elías Már sem ekki eru leikfærir. 

Frá leik liðanna í kvöld.
Frá leik liðanna í kvöld. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert