„Við áttum eiginlega ekki séns“

„Þetta var frábærlega spilað hjá þeim. Þeir voru miklu betri en við.  Við áttum eiginlega ekki séns,“ sagði Einar Hólmgeirsson aðstoðarþjálfari ÍR meðal annars við mbl.is á Ásvöllum í kvöld þar sem ÍR tapaði 38:23 fyrir Haukum í Olís-deild karla. 

Einar sagði ennfremur að ótrúlegt hafi verið að ÍR hafi ekki verið nema fjórum mörkum undir að loknum fyrri hálfleik.

Viðtalið við Einar má sjá á meðfylgjandi myndskeiði.

Einar Hólmgeirsson á hliðarlínunni í kvöld.
Einar Hólmgeirsson á hliðarlínunni í kvöld. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert